Jákvæð upplifun
Unglinganámskeið fyrir 12-15 ára
Tímarnir byggja á því að kynna hreyfingu og heilbrigðan lífstíl fyrir krökkum og unglingum í jákvæðu og uppbyggilegu umhverfi. Markmið tímanna er að bæta alhliða form barna og unglinga á breiðum grunni, með sérstakri áherslu á góða líkamsstöðu, kjarnastyrk, líkamsvitund, liðleika og matarræðis.
Í lok allra æfinga er lögð áhersla á að kynna fyrir öllum teygjur og þá mismunandi teygjur í takt við þær æfingar sem við höfum verið að gera.
Hvert námskeið er alltaf ein önn þ.e. annað hvort haustönn eða vorönn.
Allar skráningar fara fram á vefversluninni okkar og þar er hægt að nýta frístundastyrk til að greiða námskeiðið.
Sumarnámskeið hefst mánudaginn 1.júní 2026 og verður til föstudags 14.ágúst 2026
Tímarnir verða kenndir kl.15:00 mánudaga og miðvikudaga, þriðjudaga og föstudaga
Einungis 15 pláss í boði
Skráning opnar í apríl
