Grunnnámskeið

Að byrja rétt

Við leggjum ríka áherslu á að allir þeir sem hafa ekki grunn í lyftingum eða hafa einfaldlega ekki hreyft sig í langann tíma skrái sig á Grunnnámskeið.  

XY æfingarnar sameinar styrktar-, úthalds-, og liðleika-þjálfun og því er mikilvægt að líkaminn fái tækifæri til þess að aðlagast nýjum æfingum, hreyfingu og að hver og einn nái tökum á grunntækni æfinga sem við notumst við í okkar æfingakerfi.

Við byrjum rólega og leggjum mikla áherslu á rétta líkamsbeitingu. Álagið er svo aukið jafnt og þétt milli vikna og með því fylgir aukið þrek sem undibýr þig undir áframhaldandi æfingar.  

Grunnnámskeiðið er  2.vikna langt og æft er 3 sinnum í viku. Hver æfing er klukkutími í senn og er stýrt faglega af þjálfara. 

Allar okkar æfingar eru settar uppí level og eftir 2 vikna námskeið þá ættir þú  að vera tilbúin í almenna tíma,og getur þá valið úr fjölbreyttum tímum í stundaskránni okkar.

Hægt er að velja stakt námskeið, námskeið + 1 mánuð eða námskeið + 3 mánuði.

Einnig er val um að koma beint í áskrift í 6 eða 12 mánuði ( greitt mánaðarlega) og fá þá grunnnámskeiðið frítt með! 

Næsta námskeið hefst 11.ágúst og verður kennt kl.17:30 mánudaga, miðvikudaga og föstudaga

Sjá áskriftir hérna